Tilboð þetta er í boði fyrir alla. Sama hvernig bifreið viðkomandi hefur áhuga á að breyta svo framalega sem hún passar í einhvern af þeim flokkum í einhverri keppni til íslandsmeistara innan AKÍS.
Tilboðið verður í sölu til og með 25. Janúar 2019. Mælum með að ganga frá kaupum sem fyrst til að fara framalega í röð fyrir smíði á veltibúri.
McKinstry Mótorsport hefur samband eftir kaup til að bóka tíma í smíði á veltibúri og mátun á fatnaði til að fá réttar stærðir. Afhending íhluta tilboðsins er við afhendingu bifreiðarinnar að lokinni smíði á veltibúri.
Tilboðið inniheldur:
1stk OMP RS-PT.2 körfustóla
1par Turn One stólafestingar
1stk Turn One First Plus 6 punkta belti
1stk Turn One 350mm stýri, 90mm djúpt
1stk Turn One Jet-RS hjálm án intercoms
1stk Stand21 Club Series 1 HANS
1stk Turn One V-Start 2.0 keppnisgalla
1stk OMP Sport skópör
1stk OMP Sport hanska
1stk Lágmarks veltibúr sem stenst reglur um slík fyrir íslenskar rally keppnir
Skilmálar:
Kaupandi kemur með bifreiðina tóma að innan í veltibúrasmíði (sæti, mælaborð, teppi, toppklæðning o.f.). Hurðaspjöld mega vera í framhurðum.